sudurnes.net
TM átti lang lægsta tilboðið í vátryggingar fyrir Reykjanesbæ - Local Sudurnes
Ríkiskaup bauð á dögunum út vátryggingar fyrir hönd Reykjanesbæjar og tengdra félaga, Reykjaneshafnar, Fasteigna RNB ehf., Tjarnargötu 12 ehf. og Útlendings ehf.. Meðal annars er um að ræða ökutækjatryggingar, brunatryggingar húseigna og lausafjár, slysatryggingar leik- og grunnskólabarna og ábyrgðartryggingar, auk fjölda annara trygginga. Þrjú fyrirtæki sendu inn tilboð sem opnuð voru um miðjan desember síðastliðinn og átti Tryggingamiðstöðin hf. lang lægsta boð eða rétt tæplega 30 milljónir króna en Sjóvá almennar tryggingar hf. það hæsta, tæplega 54 milljónir króna. Tilboðin má sjá hér fyrir neðan í þeirri röð sem þau voru lesin upp við opnun hjá Ríkiskaupum: 1. Vátryggingafélag Íslands kr. 49.114.852.- 2. Tryggingamiðstöðin hf. kr. 28.988.263.- 3. Sjóvá almennar tryggingar hf. kr. 53.774.667.- Meira frá SuðurnesjumStærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins byggja Heilsuvöruhús á ReykjanesiVilja gera grindvíska togara umhverfisvænni með nýrri tækni5 ársverk í stærsta gagnaveri landsins – Notar um 8% af orkuframleiðslu HS OrkuHUG-Verktakar áttu lægsta tilboð í endurbætur á viðhaldsverkstæði IsaviaMisstu aðstöðu fyrir hópferðabíla við FLE – Halda áfram að þjónusta flugfarþegaFá Suðurnesjafyrirtæki á meðal 850 fyrirmyndarfyrirtækjaÞriggja milljarða króna gjaldþrot dótturfélags AtaflsTvö fyrirtæki buðu í endurnýjun sjóvarnargarðaVerðmætasköpun í atvinnulífinu og uppistand – Haustfundur Heklunnar í dagSuðurnesjafyrirtæki á lista yfir þau fyrirtæki sem vaxa hraðast í Evrópu