Suðurnesjafyrirtæki á lista yfir þau fyrirtæki sem vaxa hraðast í Evrópu
Hugbúnaðarfyrirtækið Azazo er í 946. sæti á lista Financial Times yfir þau eitt þúsund fyrirtæki sem vaxa hraðast í Evrópu.
Azazo, sem hefur þróað upplýsinga- og verkefnastjórnunarkerfið Azazo CoreData, auk lausna fyrir rafrænar undirskriftir, hóf starfsemi sína á Reykjanesbæ, en vörslusetur fyrirtækisins, Gagnavarslan, sérhæfir sig í meðhöndlun og varðveislu gagna í sérhæfðu 4.500 m2 húsnæði á Ásbrú.
Í úttekt Financial Times kemur fram að tekjuvöxtur Azazo á árunum 2012-2015 hafi numið um 70%. Hjá Azazo starfa nú um 50 manns í sex löndum.