Nýjast á Local Suðurnes

Stakkavík kaupir Örn GK ásamt kvóta

Örn GK - Mynd Aflafréttir/Reynir Sveinsson

Útgerðarfélagið Stakkavík í Grindavík hefur keypt dragnótabátinn Örn KE af útgerðarfélaginu Sólbakka, einnig í Grindavík. Báturinn er seldur ásamt öllum kvóta.  Samkvæmt úthlutun þessa árs þá er ansi stór kvóti á bátnum, eða um 1050 tonn í þorskígildum, er þetta sala uppá um 2 og hálfan milljað króna.  Þetta kemur fram á vef aflafrétta.

Á dögunum seldi Stakkavík frá sér Óla á Stað GK, var það gert svo fyrirtækið kæmist undir kvótaþakið svokallaða í krókamarkinu. Í frétt Aflafrétta kemur fram að Örn GK verði afhentur Stakkavík 1. september næstkomandi.