sudurnes.net
Slæmar aðstæður farandverkafólks - "Græða á því að leigja þurfandi fólki ónýtt húsnæði" - Local Sudurnes
Kristján Gunnarsson formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur segir mörg hundruð manns búa við óviðunandi aðstæður á Suðurnesjum, aðallega sé um að ræða erlent vinnuafl, sem leigir húsnæði sem sé langt frá því að standast kröfur um mannabústaði. Þetta kemur fram í viðtali Fréttatímans við Kristján, tengil á viðtalið má finna hér fyrir neðan. “Það er svo sem ekki við fyrirtækin sem ræður fólkið í vinnu að sakast, það er ekki alltaf á þeirra ábyrgð að útvega fólki húsnæði, heldur við einkaaðila sem græða á því að leigja þurfandi fólki ónýtt húsnæði,“segir Kristján. Kristján hefur lagt til við Reykjanesbæ að skipaður verði starfshópur til að athuga hvort leyfi séu til staðar, hvort öryggismál séu í lagi og til að meta fjölda þessara híbýla. Hann segir erfitt að nálgast upplýsingar frá verkafólkinu því það sé hrætt við að missa húsnæðið. Í umfjöllun Fréttatímans er farið um svæðið og hluti þess húsnæðis sem um ræðir skoðaður. Myndir og viðtal við Kristján má finna hér. Meira frá SuðurnesjumEinn stofnenda Tjarnarverks ætlaði að græða á fasteignabraskiMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkMeð bakþanka um starfssemi í Reykjanesbæ vegna umræðu um eldsumbrotVilja búa til nýtt og kröft­ugt fyr­ir­tæki með sameiningu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjaÍslandsbleikja flytur í Sandgerði – Byggja [...]