sudurnes.net
Sif Cosmetics verður Bioeffect - Local Sudurnes
Sif Cosmetics, sem staðsett er í Grindavík og framleiðir Bioeffect húðvörurnar vinsælu, hefur breytt um nafn og mun héðan í frá heita Bioeffect ehf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir Kristinn D. Grétarsson, forstjóri fyrirtækisins, að nafnabreytingin sé eðlilegt framhald á velgengni BIOEFFECT varanna á erlendum mörkuðum og það sé eðlileg þróun að fara í þessar breytingar hér á heimamarkaði. Þá sé ákveðin hagræðing falin í því að vera með sama vörumerki hér heima og erlendis. Bioeffect ehf. er dótturfyrirtæki ORF Líftækni en húðvörur fyrirtækisins voru fyrst kynntar á erlendum markaði í Lundúnum í desember árið 2010. Að sögn fyrirtækisins hafa vörurnar farið sigurför um heiminn undanfarin fimm ár og ku BIOEFFECT vera orðið eitt þekktasta íslenska vörumerkið á almennum neytendamarkaði erlendis. Meira frá SuðurnesjumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkHeildarkostnaður við endurbætur á Hótel Keflavík kominn yfir 300 milljónirVerðmætasköpun í atvinnulífinu og uppistand – Haustfundur Heklunnar í dagThorsil gerir 5 milljarða króna alhliða samning um framkvæmdir við kísilverHS Orka flytur höfuðstöðvar sínar í SvartsengiFrá A-Ö: Deilurnar harðna í HelguvíkReykjaneshöfn óskar eftir greiðslufresti – Boðað til kröfuhafafundarKalla þurfti til lögreglu í Helguvík – Deilur ÍAV og United Silicon fyrir gerðardómOpna tvo Dunk­in Donuts á Suðurnesjum á næstu [...]