Seldu íbúðarhúsnæði á Suðurnesjum fyrir tæpan milljarð í síðustu viku
Alls var 26 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum í síðustu viku. Þar af voru 13 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 941 milljón króna og meðalupphæð á samning 36,2 milljónir króna.
Til samanburðar var 11 kaupsamningum þinglýst á Akureyri á sama tíma og var heildarveltan 452 milljónir króna og meðalupphæð á samning 41,1 milljón króna. Þá var 9 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu í síðustu viku og var heildarveltan þar 199 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,1 milljón króna.
Að venju var langmest um þinglýsingar á höfuðborgarsvæðinu en þar var 132 kaupsamningum um fasteignir þinglýst á í síðustu viku. Þar af voru 102 samningar um eignir í fjölbýli, 27 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 5.152 milljónir króna og meðalupphæð á samning 39 milljónir króna.