Nýjast á Local Suðurnes

Reykjaneshöfn hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til framkvæmda

Reykjaneshöfn hefur skuldbundið sig til að ráðast í framkvæmdir við Helguvíkurhöfn vegna samninga við fyrirtækin Thorsil og United Silicon. Hins vegar hafa hvorki höfnin né eigandi hennar, Reykjanesbær, fjárhagslegt bolmagn til að fjármagna framkvæmdirnar. Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun Viðskiptablaðsins um málefni Reykjanesbæjar.

Reykjaneshöfn hefur skilað neikvæðri rekstrarafkomu á hverju ári frá stofnun félagsins árið 2005. Mest var tapið árið 2012, eða 667 milljónir króna. Uppsafnað tap Reykjaneshafnar frá 2005 er yfir 4,1 milljarður króna. Rekstrarvanda Reykjaneshafnar virðist að miklu leyti mega rekja til þess hversu há fjármagnsgjöld félagsins eru í samanburði við rekstrartekjur þess. Á tímabilinu frá 2005 til 2014 námu fjármagnsgjöld Reykjaneshafnar 160% af rekstrartekjum hennar.

Í samtali við Viðskiptablaðið segir Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, að langan tíma geti tekið að þróa iðnaðarsvæði. Hann bendir á að 25 ár hafi liðið frá því að járnblendi kom á Grundartanga og þangað til álver var reist þar. “Það er ekki eins og það sé nýtt fyrirtæki að spretta upp í hverjum mánuði,” segir Halldór.