Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanesbær og Thorsil sýknuð af kröfu AGC

Reykjaneshöfn, Reykjanesbær og Thorsil ehf. voru sýknuð af kröfu Atlantic Green Chemicals (AGC ehf.) í héraðsdómi þann 19. október síðastliðinn. AGC ehf. var jafnframt dæmt til að greiða stefndu hverju um sig málskostnað.

AGC ehf. hugðist reisa lífalkóhól- og glýkólverksmiðju í Helguvík og hafði augastað á lóðinni Stakksbraut 4, síðar Berghólabraut 4. Undirbúningsvinna hófs snemma árs 2011 m.a. með fundum með ráðamönnum Reykjanesbæjar þar sem matsáætlun fyrirtækisins var kynnt  og borin fram ósk um lóð í Helguvík. Hafnarstjóri lýsti Reykjaneshöfn reiðubúna til að úthluta AGC ehf. lóðina að Stakksbraut 4 undir verksmiðjuna ef um semdist, enda félli fyrirhuguð framkvæmd vel að markmiðum Reykjanesbæjar um uppbyggingu í Helguvík. Í apríl 2014 var undirritaður lóða- og hafnasamningur milli Reykjaneshafnar og Thorsil ehf. um lóð við Berghólabraut 4.

Í viðræðum við ráðamenn Reykjanesbæjar hafði stefnandi AGC ehf. talið að vilyrði fyrir lóðinni Berghólabraut 4 væri bindandi og fæli í sér forgangsrétt varðandi úthlutun lóðarinnar. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að viljayfirlýsing Reykjaneshafnar fæli einungis í sér að höfnin væri reiðubúin að úthluta lóð til AGC ehf. ef um semdist og því ekki um skuldbindandi samning um úthlutun lóðarinnar að ræða á milli aðila.

Er þetta í annað sinn sem AGC ehf. hefur uppi kröfur af þessum toga á hendur Reykjaneshöfn, Reykjanesbæ og Thorsil ehf. Með dómi Hæstaréttar sem kveðinn var upp þann 26. nóvember 2015 var kröfum AGC ehf. á hendur þessum aðilum vísað frá dómi.

Hér má lesa héraðsdóminn í heild.