Opna Krakkaland á Ásbrú – Hoppukastalar og aðstaða fyrir barnaafmæli
Til stendur að opna um það bil 500 fermetra Krakkaland upp á Ásbrú á næstunni, um er að ræða aðstöðu svipaða þeirri sem boðið var upp á í Innileikjagarðinum, sem til stendur að loka á næstunni. Að sögn forsvarsmanna verkefnisins, sem er enn á undirbúningsstigi verður boðið uppá hoppukastala og fleira skemmtilegt fyrir börn að 12 ára aldri.
Þá verður hægt að leigja aðstöðuna undir barnaafmæli, hvar boðið verður upp á léttar máltíðir og annað sem fylgir slíkum viðburðum. Að sögn forsvarsmanna verður verði fyrir þessa þjónustu stillt í hóf.
Einnig verður í boði fyrir foreldra að koma með börnin og setjast niður í flottri aðstöðu, fá sér kaffi og jafnvel læra á meðan börnin fá útrás.
Nánari upplýsingar um Krakkaland er að finna á Facebook-síðu verkefnisins, en þar verður tilkynnt um opnunina, sem áætluð er um miðjan febrúar, og það sem í boði verður.