Nýjast á Local Suðurnes

Mesta tekjuaukning frá stofnun Isavia – Gríðarleg fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll

Ársreikningur Isavia fyrir árið 2016 var samþykktur á aðalfundi félagsins, sem haldinn var þann 23. mars síðastliðinn. Tekjur félagsins námu 33 milljörðum króna sem er 27% aukning á milli ára. Er þetta mesta tekjuaukning frá stofnun félagsins og má að mestu leyti rekja hana til fjölgunar farþega á Keflavíkurflugvelli, segir í tilkynningu frá félaginu.

Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um 40%, flugvélum sem fóru um íslenska flugstjórnunarsvæðið fjölgaði um 13,5% og innanlandsfarþegum um 8%.

“Árið 2016 var frábært rekstrarár og var ánægjulegur vöxtur á öllum sviðum fyrirtækisins. Rekstur Keflavíkurflugvallar er auðvitað mest áberandi, en þaðan koma mestu tekjurnar og hafa þær verið nýttar í nauðsynlega uppbyggingu flugvallarins, Hins vegar var einnig gríðarleg aukning í flugumferð um íslenska flugstjórnarsvæðið og höfum við brugðist við henni með bættum búnaði, stækkun húsnæðis og fjölgun starfsfólks.

Það liggur fyrir að ráðast þarf í miklar fjárfestingar á Keflavíkurflugvelli á næstu árum til að mæta áframhaldandi fjölgun farþega. Eiginfjárstaða Isavia er sterk og því er félagið vel í stakk búið til þess að takast á við þær. Á móti kemur að þessar fjárfestingar munu kalla á aukið aðhald í rekstri á meðan þær standa yfir.”  Sagði Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia.