Leggja til að Kadeco ráðstafi lóðum í eigu ríkisins á ný
Lagt er til, í nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, að gengið verði til samninga við Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Isavia ohf. um skipulag og þróun lands í nágrenni Keflavíkurflugvallar.
Frá þessu er greint á vef Kjarnans, en samkvæmt fréttinni er sérstaklega er tekið fram í frumvarpinu að gangið verði til samninga við Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ohf. um umsjón og fjármögnum verkefnisins og um fyrirkomulag og ráðstöfun á lóðum og landi í eigu ríkisins.
Kadeco mun því fá aukið hlutverk við ráðstöfun á lóðum og landi í eigu ríkisins á svæðinu við og í kringum Keflavíkurflugvöll. Stjórnarformaður Kadeco er Suðurnesjamaðurinn Ísak Ernir Kristinsson, fyrrum flugþjónn hjá WOW-air. Hann var tilnefndur í starfið af Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra.
Hlutverk Kadeco við brottför bandaríska hersins frá landinu var að selja þær eignir sem herinn hafði byggt hér á landi. Ýmis mál í tengslum við eignasölur Kadeco rötuðu í fréttir, meðal annars voru nær allar eignir sem félagið ráðstafaði seldar til fárra aðila á afar lágum verðum. Þá voru viðskipti fyrrum framkvæmdastjóra félagsins og samstarfsmanna gagnrýnd sem endaði með því að framkvæmdastjórinn hætti störfum fyrir félagið.