Leggja niður störf í Helguvík – Kísilver skuldar verktökum milljarð
Verktakafyrirtækið ÍAV lagði niður störf við byggingu kísilvers United Silicon í Helguvík á hádegi í gær, vegna vanefnda verkkaupa. Skuldir fyrirtækisins við aðalverktann slaga hátt í milljarð króna að sögn Sigurðar Ragnarssonar forstjóra ÍAV. Tugir starfsmanna ÍAV voru við störf í Helguvík í gær þegar ákveðið var að leggja niður störf, en verkinu er nærri lokið.
Þetta kemur fram í frétt mbl.is um málið, en þar segist Sigurður hafa verið í verktakabransanum í áratugi og aldrei kynnst svona framkomu.
“Við höfum verið í verktakabransanum í áratugi og höfum aldrei kynnst svona framkomu. Aldrei.“
Sigurður segir málaferli vera í vændum. „Það verða málaferli. Við erum að pakka saman núna og taka saman okkar hafurtask.“
ÍAV hótaði að leggja niður vinnu í byrjun júní síðastliðins af sömu ástæðum og að ofan greinir, en þá náðist samkomulag á milli fyrirtækjanna um að halda framkvæmdum áfram. Þá sagði Magnús Garðarsson framkvæmdastjóri United Silicon að engar deilur væruvið verktaka, málin hafi verið leyst.
“Thað eru engar deilur á milli okkar og neins af verktökum okkar. Já við vorum ósáttir við hrada verksins var ekki nógu góður, enn thað hefur verið leyst með góðu samkomulagi sem var gert í gær og ÍAV mun klára verkið 30. júní. Framleiðsla mun hefjast eftir prófanir á útbúnaði hafa verið kláraðar í lok júlí.” Sagði Magnús í svari við fyrirspurn Suðurnes.net, hann svaraði hinsvegar ekki spurningum um upphæðir, né deilurnar að öðru leiti.