sudurnes.net
Landsbankinn selur Miðland - Var einn af stærstu lántakendum Sparisjóðsins - Local Sudurnes
Miðland ehf., fjárfestinga- og fasteignafélag sem stofnað var árið 1979 og hefur fjárfest í landi á Neðra-Nikel svæðinu í Reykjanesbæ, hefur verið auglýst til sölu af Hömlum, dótturfélagi Landsbankans. Eign félagsins er tvíþætt, annars vegar eignarland sem samtals er um 34 hektarar og er skipulagt undir byggingu á allt að 485 íbúðum ásamt atvinnuhúsnæði (1,4 hektarar) og hins vegar samningur við Reykjanesbæ um að Miðland annist gatnagerð á svæðinu og hljóti tekjur af. Miðland var einn af stærstu lántakendum Sparisjóðsins í Keflavík fyrir hrun og þar með hluti af eignasafni sjóðsins sem færðist yfir til Landsbankans. SpKef Sparisjóður mat virði trygginga vegna Miðlands á 604 milljónir króna við yfirfærsluna til Landsbankans og byggðist matið á áætluðum fjölda íbúða á svæðinu. Miðland var einn af stærstu lántakendum hjá Sparisjóðnum. SpKef mat virði trygginga vegna Miðlands á 604 milljónir króna við yfirfærslu til Landsbanka Deiliskipulag fyrir hluta byggingarlandsins er þegar samþykkt og gerir ráð fyrir byggingu á samtals 300 íbúðum. Gatna-og holræsagerð hefur verið unnin að hluta til á svæðinu og hægt er að hefja framkvæmdir á hluta lóðanna nú þegar. Samkvæmt gildandi Aðalskipulagi Reykjanesbæjar er gert ráð fyrir byggingu allt að 185 íbúða til viðbótar. Áhugasamir fjárfestar geta óskað eftir því að [...]