Nýjast á Local Suðurnes

Kröfuhafaráð mun koma að fjárhagslegri endurskipulagningu Reykjaneshafnar

Í tilkynningu Reykjaneshafnar til Kauphallar þann 8. október sl. var þess getið að til greiðslufalls kæmi, að öllu óbreyttu, á skuldbindingum hafnarinnar sem á gjalddaga væru þann 15. október sl., sem og að leitað yrði til fjárhagslegra kröfuhafa um að veita greiðslufrest og kyrrstöðutímabil til og með 30. nóvember nk. Var jafnframt boðað til fundar kröfuhafa sem haldinn var þann 14. október sl.

Í framhaldi fundarins hafa nú allir þekktir kröfuhafar skuldbindinga sem falla í gjalddaga í dag 15. október samþykkt að veita framangreindan greiðslufrest og kyrrstöðutímabil til og með 30. nóvember nk., segir í tilkynningu frá Reykjaneshöfn.

Þá segir ennfremur í tilkynningunni ap í framhaldinu mun verða skipað kröfuhafaráð sem mun koma að viðræðum um fjárhagslega endurskipulagningu fjármála Reykjaneshafnar.