Nýjast á Local Suðurnes

Kostnaður Thorsil vegna raforkukaupa verður um 4 milljarðar á ári

Thorsil mun greiða töluvert meira en meðalverð til iðnaðar fyrir hverja megavattstund sem notuð verður í kísilmálsverksmiðju sem félagið áætlar að byggja i Helguvík, en fyrirtækið mun greiða um 40 dali fyrir hverja megawattstund. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Thorsil hefur gert samninga við HS-orku og Landsvirkjun um orkuöflun og orkuflutning fyrir verksmiðjuna, en ofan á kaupverð bætist kostnaður við orkuflutning sem mun nema um sex til sjö dölum.

Samkvæmt ársskýrslu Landsvirkjunar er meðalverð raforku til iðnaðar 25,9 dalir fyrir hverja metawattstund, en þetta verð er reiknað með flutningskostnaði. Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að heildarkostnaður Thorsil vegna raforkukaupamuni  nema 4 milljörðum á ári.