Keilir kaupir Flugskóla Íslands - Local Sudurnes
Flugakademía Keilis hefur fest kaup á Flugskóla Íslands og er samanlagður fjöldi nemenda í flugskólunum á fimmta hundrað, að því er segir í tilkynningu. Ekki er gert ráð fyrir miklum breytingum á starfsemi skólanna í fyrstu og mun verkleg flugkennsla fara fram bæði á Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvelli. Þá segir að vinna við að efla starfsstöðvar á landsbyggðinni muni halda áfram, eru í því samhengi nefndar starfsstöðvar á Selfossi og Sauðárkróki. „Við erum afskaplega ánægðir með kaupin og teljum þau styrkja mjög flugkennslu á landinu. Flugakademía Keilis er ung að árum en hefur vaxið hratt og mun sú mikla reynsla og þekking stjórnenda og kennara Flugskóla Íslands hafa jákvæð áhrif á það starf sem við höfum byggt upp undanfarin ár,“ segir Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíu Keilis. Meira frá SuðurnesjumFramtakssjóður kaupir Plastgerð Suðurnesja og Borgarplast – Sameina rekstur félagannaFlugakademía Keilis stofnar Flugklúbb Helga JónssonarBGB Gesthús færir út kvíarnar – Festu kaup á hóteli í VestmannaeyjumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkBílaleiga Akureyrar kaupir stórar lóðir á Ásbrú – “Núverandi aðstaða sprungin”Greiddi 200 milljónir króna fyrir Hótel Berg – Miklir möguleikar á stækkunStækka Hótel Berg – “Markmiðið að gera gott hótel enn betra”Verslunarrisar skella í lás í ReykjanesbæKrabbaverkefni fá styrki úr UppbyggingarsjóðiMesta tekjuaukning [...]