Jarðboranir og HS Orka semja um djúpborun á Reykjanesi
HS Orka og Jarðboranir hafa gert samning um djúpborun á Reykjanesi. Verkefnið er hluti af Íslenska djúpborunarverkefninu sem fékk nýlega styrk upp á 1,3 milljarða króna frá rannsóknaráætlun Evrópusambandsins. Stefnt er að því að holan verði dýpsta og heitasta vinnsluhola jarðvarma á Íslandi.
Þetta kemur fram í umfjöllun Morgunblaðsins um verkefnið, þar kemur einnig fram að samningurinn verði undirritaður í dag en hann varðar borun á allt að 5 kílómetra djúpri háhitaholu á Reykjanesi. Samningurinn er annar áfanginn í Íslenska djúpborunarverkefninu. HS Orka leiðir verkefnið í samstarfi við norska olíufélagið Statoil, auk annarra fyrirtækja innan IDDP samstarfsins.
Íslenska djúpborunarverkefnið (IDDP) hefur verið starfrækt í um 15 ár. Að IDDP standa íslensku orkufyrirtækin, HS Orka , Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur, ásamt Orkustofnun og Statoil.