sudurnes.net
Íslenskir lífeyrissjóðir og banki á meðal stærstu hluthafa USi - Sjáðu listann! - Local Sudurnes
Erfiðleikar með ljósbogaofn hafa einkennt rekstur United Silicon frá upphafi, en eins og kunnugt er hefur fyrirtækið átt í miklum vandræðum með mengunarvarnarbúnað verksmiðjunnar. Fyrirtækið hefur nú birt upplýsingar um 10 stærstu hlutafana, en þeir ráða yfir 99% hlutafjár í félaginu. United Silicon var stofnað fyrir tæplega þremur árum af Magnúsi Garðarssyni umhverfisverkfræðingi, Helga Birni Ormarssyni vélaverkfræðingi og Friðbirni Garðarssyni hæstarréttarlögmanni í samstarfi við hollenska fyrirtækið Silicon Mineral Ventures (SMV). Síðastnefnda fyrirtækið á rúmlega 1% í USi, en SMV sér um sölu- og markaðsmál í gegnum dótturfyrirtæki sitt í Hollandi. United Silicon er í meirihlutaeigu Íslendinga, en auk stofnenda eru tveir íslenskir lífeyrissjóðir og Arion banki stórir hluthafar. Þá eru aðilar frá Danmörku og Hollandi á meðal hluthafa fyrirtækisins, en listann sem birtur var nýlega á heimasíðu fyrirtækisins má sjá hér fyrir neðan: Nafn hluthafa Fjárhæð hlutar Hlutdeild 1 Kísill Ísland hf. 2.338.563.134 36,59478% 2 Kísill III slhf. 1.974.465.000 30,89722% 3 Arion banki hf. 698.372.058 10,92841% 4 USI Holding B.V. 448.534.910 7,01885% 5 Frjálsi lífeyrissjóðurinn 356.827.507 5,58378% 6 Festa Lífeyrissjóður 233.710.036 3,65719% 7 Kastalabrekka ehf 115.624.000 1,80933% 8 Silicon Mineral Ventures 65.985.000 1,03256% 9 Magnús Garðarsson 59.600.000 0,93264% 10 Eftirlaunasjóður Atvinnuflugm. 35.889.164 0,56161% Meira frá SuðurnesjumEkkert fékkst upp í [...]