Nýjast á Local Suðurnes

Isavia hefur afhent Kaffitári gögn sem tengjast forvali í Leifsstöð

Isavia boðaði lögmann Kaffitárs á fund í gær, fimmtudaginn 14. júlí. Þar reyndi lögmaður Isavia að afhenda gögn sem snúa að útboði varðandi þjónustu á Keflavíkurflugvelli. Í tilkynningu frá Isavia kemur fram að lögmaður Kaffitárs hafi neitað að taka við gögnunum. Isavia ítrekaði þá boð sitt um að setjast yfir gögnin til að fara eftir tilmælum Samkeppniseftirlitsins. Kaffitár vildi hins vegar halda máli sínu fyrir Sýslumanni til streitu, þar sem afhendingar gagnanna yrði krafist, þrátt fyrir að fulltrúi Kaffitárs hafi neitað að taka við þeim.

Isavia boðsendi því gögnin á skrifstofu Kaffitárs í morgun og var þeim veitt viðtaka þar, áður en boðaður fundur hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu fór fram.

Þrátt fyrir að Samkeppniseftirlitið hafi varað við því að Isavia gæti gerst brotlegt við samkeppnislög með afhendingu gagnanna, taldi fyrirtækið sér ekki annað stætt en að verða við úrskurði héraðsdóms þar um. Það er þá á ábyrgð Kaffitárs að hafa tekið við gögnunum, en Samkeppniseftirlitið telur að viðtakan geti falið í sér brot á samkeppnislögum.

Isavia reyndi fram á síðustu stundu að ná samkomulagi við Kaffitár um að fara að tilmælum Samkeppniseftirlitsins. Kaffitár hefur hins vegar ekki sýnt vilja til þess og því hefur Isavia nú afhent gögnin, eins og fyrr segir.

Isavia hefur alla tíð haldið því fram að óeðlilegt væri að afhenda þriðja aðila viðkvæm gögn um rekstur og áætlanir samkeppnisaðila og Samkeppniseftirlitið tekur undir það í bréfi sínu. Það er Kaffitárs að svara fyrir viðtöku gagnanna.

Gögnin sem um ræðir snúast ekki um Isavia heldur um fyrirtæki sem tóku þátt í samkeppni um veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Isavia hefur ekki haft neinna hagsmuna að gæta í málinu, annarra en þeirra að fara eftir lögum og eðlilegum viðskiptaháttum. Niðurstaða forvalsins var eingöngu byggð á viðskiptalegum forsendum. Segir í tilkynningu Isavia.