sudurnes.net
Isavia ber að afhenda Kaffitári gögn - Local Sudurnes
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál þess efnis að Isavia beri að afhenda Kaffitári gögn sem innihalda viðskiptaupplýsingar samkeppnisaðila Kaffitárs. Félagið taldi nauðsynlegt að dómstólar myndu skera úr um það hvaða gögn teljist viðkvæm fjárhags- og viðskiptagögn í skilningu upplýsingalaga. Isavia hefur alltaf borið hag viðskiptavina sinna fyrir brjósti og ekki talið rétt að birta viðkvæm viðskiptagögn þeirra án dómsúrskurðar. Í tilkynningu frá Isavia segir að mikilvægt sé að niðurstaða hafi fengist í héraðsdómi en telur þó mikilvægt að hæstiréttur fái málið til efnislegrar meðferðar og endanlegrar niðurstöðu. Þau gögn sem málin snúast um eru gögn þeirra fyrirtækja sem þátt tóku í forvali um leigu á verslunar- og veitingahúsnæði í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þær upplýsingar sem þátttakendur í forvalinu veittu eru alls eðlisólíkar og mun ítarlegri en þær upplýsingar sem bjóðendur í hefðbundnum útboðum veita. Meira frá SuðurnesjumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkVilja byggja 74 íbúðir við Hafnargötu 12 – Hvað finnst þér?Óþekktu milljarðamæringarnir skoða fjárfestingamöguleika á ÁsbrúSamdráttur í Fríhöfninni gæti skaðað birgja og smásalaSameinað Silicon fær heimild til nauðasamninga – Samningar ekki tekist við ÍAVÓþekktu milljarðamæringarnir kaupa fasteignir á Ásbrú fyrir 5 milljarða krónaBus4u bætir lúxus í flotannSteingrímur J.: “Ríkur vilji heimafyrir hélt Sparisjóðnum gangandi”Herinn býður [...]