Íhuga að selja hlut í Bláa lóninu – Starfsemin fellur ekki að kjarnastarfsemi HS Orku
HS Orka hefur falið Stöplum Advisory að ræða við hugsanlega fjárfesta og stýra söluferli á 30% hlut fyrirtækisins í Bláa lóninu. Er það gert í kjölfarið á sýndum áhuga á hlut félagsins.
„HS Orka hefur verið hluthafi í Bláa Lóninu frá upphafi og hefur stolt stutt við vöxt þess. Bláa Lónið er nú með umfangsmikinn rekstur, dafnar og er enn í verulegum vexti. Þrátt fyrir að um einstaka eign sé að ræða og þá fellur starfsemi Bláa Lónsins ekki að kjarnastarfsemi HS Orku sem er framleiðsla og sala endurnýjanlegrar orku. Því ákváðum við að hefja þetta ferli,“ er haft eftir Ásgeiri Margeirssyni, forstjóra HS Orku í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í dag.