Nýjast á Local Suðurnes

Hagnaður Kaffitárs lækkar mikið – Eigið fé fyrirtækisins 350 milljónir

Hagnaður Kaffitárs á árinu 2014 nam 1,6 milljónum króna en þetta er mikil lækkun frá fyrra ári en þá var hagnaður félagsins um það bil 86 milljónir króna.

Eignir félagsins námu 766,6 milljónum samkvæmt efnahagsreikningi í lok árs 2014, eigið fé var 349,3 milljónir og eiginfjárhlutfall var 43%. Þetta kemur fram á vef Viðskiptablaðsins.