Hafa selt tæplega 900 eignir á Suðurnesjum
Íbúðalánasjóður hefur selt 859 íbúðir á Suðurnesjum það sem af er ári. Salan er í samræmi við væntingar sjóðsins sem áætlar að selja um 900 eignir á svæðinu á þessu ári.
Þetta kemur fram í umfjöllun Morgunblaðsins um eignasölu sjóðsins á landinu öllu í dag. Ágúst Kr. Björnsson, forstöðumaður fullnustueigna hjá ÍLS segir söluna vera í samræmi við áætlanir.
„Góð sala hefur verið á flestum markaðssvæðum og í einstökum landshlutum. Áberandi að fasteignamarkaður á Suðurnesjum hefur verið góður og mikil sala eigna hefur verið þar.” Segir Ágúst.