Grindvíkingar vilja frest til að taka afstöðu til forkaupsréttar á Óla á Stað
Báturinn Óli á Stað GK 99 var settur á sölu í desember síðastliðnum eftir að kröfur um að stærsta fyrirtæki landsins sem gerir út báta í króaaflamarkinu, Stakkavík losi sig við kvóta þar sem fyrirtækið hafi verið með meiri kvóta en lög gera ráð fyrir. Grindavíkurbær hafði forkaupsrétt á bátnum en bæjarráðlagði til að sá forskaupsréttur af skipinu og tilheyrandi aflaheimildum yrði ekki nýttur. Viðræður standa yfir á milli Stakkavíkur og Loðnuvinnslunnar um sölu á bátnum.
„Að mati bæjarráðs eru of margir óvissuþættir í málinu og áhætta sveitarfélagsins of mikil. Stakkavík ehf. hyggst fjárfesta í öðru skipi og aflaheimildum í aflamarkskerfinu til að mæta þeirri minnkun sem salan hefur í för með sér. Gangi áætlanir Stakkavíkur eftir hefur breytingin ekki afgerandi áhrif á atvinnulíf og samfélag í Grindavík, og því ekki ástæða til að sveitarfélagið grípi inn í viðskiptin með því að beita forkaupsrétti,“ segir í fundargerð.
Bæjarstjórn Grindavíkur tók málið fyrir á fundi sínum þann 26. janúar síðastliðinn í tilefni af svarbréfi lögmanns Loðnuvinnslunnar hf., þar sem áréttaður var sá skilningur Loðnuvinnslunnar að forkaupsréttur Grindavíkurbæjar á Óla á Stað GK-99 sé fallinn niður.
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar áréttaði á þessum fundi sínum að afgreiðslu málsins hafi verið frestað vegna tilkynningar um að fallið hafi verið frá sölutilboðinu. Bæjarstjórn lagði fram eftirfarandi tillögu til lausnar á málinu:
Bæjarstjórn leggur til að bréfinu verði svarað, þar sem Grindavíkurbær krefst þess að þegar lokaniðurstaða liggur fyrir í ágreiningsmáli aðila, fái sveitarfélagið senda tilkynningu þess efnis með sannanlegum hætti, og fái frá þeim tíma fjögurra vikna frest til að taka afstöðu til forkaupsréttins, enda sé um að ræða gildan samning. Telur Grindavíkurbær að slík meðferð málsins væri í samræmi við ákvæði 3. og 4. mgr. 12. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.
Tillagan var samþykkt samhljóða með 6 atkvæðum.