sudurnes.net
Grindavíkurhöfn í stöðugri sókn - Local Sudurnes
Árið 2015 var býsna gott ár fyrir Grindavíkurhöfn þrátt fyrir miklar brælur það árið. Heildarafli sem barst á land í Grindavíkurhöfn 2015 var um 43.400 tonn. Það er mesta löndun á einu ári síðan 2008 og munar þar um 10.000 tonnum. Á árunum 2004 til og með 2007 var landaður afli töluvert meiri, en þá var loðnulöndun umtalsverð. Loðnu hefur ekki verið landað í Grindavík síðan 2007. Frá árinu 2008 hafa landanir þrátt fyrir það aukist jafnt og þétt. Þetta kemur fram í samantekt Sigurðar A. Kristmundssonar, hafnarstjóra í Grindavík, sem birt er á heimasíðu sveitarfélagsins. Ástæða aukinna landana er fyrst og fremst sú, að bátarnir frá Vísi lönduðu 35% meira í heimahöfn í fyrra en árið áður og skýrist það af því að öll vinnsla fyrirtækisins hefur nú verið færð til Grindavíkur, þó bátarnir landi áfram einhverju af afla sínum úti á landi og flytji hann síðan suður til vinnslu. Þá hafa bátar Skinneyjar-Þinganess á Höfn í Hornafirði landað töluverðu á síðasta ári í Grindavík og sömuleiðis línubáturinn Anna EA. Þá er þróunin sú að botnsfiskur er aukið hlutfall af lönduðum fiski en landanir á ódýrari fiski eins og makríl hafa dregist saman og eykur það tekjur hafnarinnar og [...]