sudurnes.net
Gríðarlegur vöxtur leigufélags - Sópuðu að sér íbúðum á Ásbrú og hækkuðu leigu - Local Sudurnes
Efnahagsreikningur Heimavalla, stærsta leigufélags landsins fjórfaldaðist að stærð í fyrra vegna sameininga við smærri félög og jukust leigutekjur ríflega. Fyrirtækið keypti rúmlega 700 íbúðir af leigufélagi í eigu Kadeco, Ásabyggð, og um tæplega 100 íbúðir sem voru í eigu Tjarnarverks. Athygli vakti að félagið hækkaði leigu á Ásbrú töluvert um leið og kaupin á Ásabyggð voru gengin í gegn. Vöxtur félagsins hefur vakið athygli, en eignir samstæðunnar jukust úr 10,4 milljörðum króna í 43,3 milljarða. Í ársbyrjun 2016 voru 445 leiguíbúðir í rekstri hjá félaginu en í lok ársins voru þær 1.714, langstærstur hluti stækkunarinnar er tilkominn vegna uppkaupa á íbúðum á Suðurnesjum. Frá þessu er greint í úttekt Viðskiptablaðsins á leigumarkaðnum, en þar kemur fram að hagnaður fyrirtækisins nam 2,2 milljörðum króna í fyrra. Meira frá SuðurnesjumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkByggingarfélag Gylfa og Gunnars kaupir Miðland á 651 milljónMethagnaður hjá leigurisa – Undirbúa skráningu á markaðFjöldi athugasemda vegna starfsleyfis Thorsil – Margar samhljóðaHeimavellir selja níu fjölbýlishús á ÁsbrúFlugstöðin verður stærsti vinnustaður landsins – Erlendu starfsfólki fjölgarMargt sögulegt í ársreikningum ReykjanesbæjarBesta rekstrarár í sögu HS OrkuBjóða út aðstöðu til reksturs raftækjaverslunar í flugstöðinniHópbílar og Kynnisferðir sjá um strætóakstur