sudurnes.net
Gríðarleg aukning í sölu fasteigna á Suðurnesjum - Local Sudurnes
Langmest aukning var í veltu á fasteignamarkaði á fyrstu ellefu mánuðum ársins á Reykjanesinu, heildarveltan á árinu er komin í 27 milljarða, sem er aukning sem nemur um 12 milljörðum króna, eða 80 prósent á milli ára samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á Reykjanesi í ár er kominn í 1.037, en sú tala miðast við sveitarfélögin Garð, Grindavík Sandgerði og Voga auk Reykjanesbæjar. Allt árið 2015 var 806 kaupsamningum þinglýst á Reykjanesi. Þrátt fyrir að tekið sé fram á vef Þjóðskrár að meðalupphæð kaupsamnings skuli ekki túlka sem meðalverð eigna – Og þar með sem vísbendingu um verðþróun, er þó ljóst að verðgildi hvers samnings hefur aukist töluvert milli ára. Meira frá SuðurnesjumBus4u í hópi þeirra stærstu – Yfir milljarður í tekjurHugbúnaðar- og gagnavörslufyrirtæki á Ásbrú rambar á barmi gjaldþrotsMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkHS Veitur hagnast um 780 milljónir króna – Greiða hálfan milljarð í arðRekstur Kölku gengur vel – Tekur styrkveitingar til skoðunar á ný eftir hléKeflavíkurflugvöllur skilar Isavia um 70% af tekjum samstæðunnarKosmos & Kaos og DaCoda tilnefnd til Íslensku vefverðlaunannaMilljónirnar streyma inn – Gestir Bláa lónsins greiða um 16 milljónir króna í aðgangseyri á dagNýskráningum fyrirtækja fjölgar og færri fara í þrotGistinóttum á hótelum fjölgar á milli [...]