sudurnes.net
Forstjóri Norðuráls bjartsýnn á að álver rísi í Helguvík - Local Sudurnes
Uppbygging Norðuráls á álveri í Helguvík hefur lengi verið til umræðu en fyrsta skóflustunga fyrir álverinu var tekin árið 2008. Óljóst er hins vegar hvenær það mun rísa þar sem deilur eru um gildandi orkusölusamning á milli Norðuráls og HS Orku. Spurður að því hvenær álver muni rísa við Helguvík segir Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, að niðurstöðu úr gerðardómsmeðferð í máli fyrirtækjanna tveggja sé að vænta á næsta ári. Hann segist bjartsýnn á að álverið verði reist og að fjárfestingin verði arðbær. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu. “Við sjáum sömuleið­is að ef við horfum á afkomuna í orkugeiranum þá er hún mjög góð. Ég ræddi það einmitt á ársfundi Samáls að þarna væri verið að skila tugum milljarða á ári til íslensks samfélags. Þar virðist dæmið líka hafa gengið upp. Er hægt að endurtaka dæmið í Helguvík? Já, ég held það og ég held að það gæti gengið upp fyrir alla aðila. Við þurfum bara að bíða og sjá hvernig úr því vinnst.“ Segir forstjóri Norðuráls við Viðskiptablaðið. Meira frá SuðurnesjumHS Veitur hagnast um 780 milljónir króna – Greiða hálfan milljarð í arðHS Orka flytur höfuðstöðvar sínar í SvartsengiAllt hreint mun sjá um hreingerningar í grunnskólum ReykjanesbæjarMikill áhugi á Græna [...]