Nýjast á Local Suðurnes

Fjöldi athugasemda vegna starfsleyfis Thorsil – Margar samhljóða

Hátt á þriðja tug athugasemda hafa borist Umhverfisstofnun vegna starfsleyfis Thorsil í Helguvík, en umsagnarfrestur rann út í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun gætu fleiri athugasemdir borist með pósti á næstu dögum.

Frá þessu er greint á vef RÚV, en þar er haft eftir Aðalbjargu Birnu Guttormsdóttur á sviði samþættingar hjá Umhverfisstofnun að flestar athugasemdirnar komi frá íbúum í nágrenni Helguvíkur og að nokkuð margar séu samhljóða. Hún segir að athugasemdum verði svarað efnislega. Aðalbjörg Birna segir gert ráð fyrir að Umhverfisstofnun  taki ákvörðun í lok janúar.

Þá var greint frá því í gær að frest­ur­ Thorsil til greiðslu gatnargerðargjalda til Reykjaneshafnar vegna verksmiðju fyrirtækisins sem áætlað er að reisa í Helguvík rann út þann 30. sept­em­ber síðastliðinn og hefur greiðslan ekki enn verið innt af hendi. Að sögn Halldórs Karls verður greiðslan ekki innt af hendi fyrr en starfsleyfi fyrirtækisins er í höfn, samkvæmt greiðslusamkomulagi sem er í gildi milli aðila.