sudurnes.net
Fjármögnun Verne Global næst stærsta tæknifjárfestingin á Norðurlöndum - Local Sudurnes
Í samantekt vefmiðilsins The Nordic Web sem nær til 339 fjárfestinga í norrænum tæknifyrirtækjum upp á samtals 1,82 milljarða dollara eða jafnvirði 235 milljarða króna kemur fram að fjárfest hafi verið í íslenskum fyrirtækjum fyrir um 25 milljarða króna, sem er 11% af þeirri heildarupphæð sem fjárfest var í þessum geira á Norðurlöndum. Stærsta einstaka tæknifjárfestingin á Norðurlöndum í fyrra var 526 milljón dollara fjármögnun Spotify, en í öðru sæti er 98 milljón dollara fjármögnun íslenska fyrirtækisins Verne Global, sem staðsett er á Ásbrú. Samkvæmt úttektinni voru þrjár af tíu stærstu fjárfestingunum í tæknifyrirtækjum á Norðurlöndum á síðasta ári voru í íslenskum fyrirtækjum. Meira frá SuðurnesjumLeggja 7 milljarða í stækkun gagnaversFjárfesta fyrir um 70 milljarða á ÁsbrúÓánægja meðal íbúa Reykjanesbæjar með starfsemi MjölnisSímafélagið flytur mikilvæg fjarskiptakerfi í gagnaver Verne Global á ÁsbrúEarlham Institute í samstarf við Verne GlobalVolkswagen semur við Verne Global – Nýta sér ofurtölvur við hönnunSóknaráætlun Suðurnesja og Eldey tryggja rekstur Mekano í árMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkStefnt að hafnarframkvæmdum fyrir milljarð í GrindavíkSprotafyrirtæki á Ásbrú hópfjármagnar byltingarkennda vöru – Myndband!