sudurnes.net
Ellert Skúlason bauð lægst í breytingar á flugvélastæðum við FLE - Local Sudurnes
Ellert Skúlason ehf. bauð lægst í vinnu við breytingar á flugvélastæðum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar, en tilboð í verkið voru opnuð í gær. Fjögur fyrirtæki skiluðu inn tilboðum í verkið, en auk Ellerts Skúlasonar buðu Ístak, ÍAV og IJ Landstak í verkið. Verkinu er skipt í 4 áfanga og skal lokið um miðjan október 2017. Í útboðsgögnum er tekið fram að verktaki skuli taka að sér jarðvinnu, fyllingar og leggja flughlaðsmalbik. Ásamt því að breyta og koma fyrir raflögnum og öðrum búnaði sem til þarf. Nöfn bjóðenda og tilboðsupphæðir má sjá hér fyrir neðan: 1. Nafn: Ístak hf. Fjárhæð: 381.828.204 kr 2. Nafn: Ellert Skúlason ehf. Fjárhæð: 345.764.828 kr 3.Nafn: IJ Landstak Fjárhæð: 629.530.925 kr 4. Nafn: Íslenskir Aðalverktakar hf Fjárhæð: 375.691.872 kr Meira frá SuðurnesjumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkLandsnet Semur Við ÍAVÍAV bauð best í tvöföldun ReykjanesbrautarÍAV býr til FlugvelliSameinað Silicon fær heimild til nauðasamninga – Samningar ekki tekist við ÍAVÓska eftir tilboðum í tengibyggingu við Fjölbrautaskóla SuðurnesjaUnited Silicon þarf að greiða ÍAV rúman milljarð krónaViðskipti með íbúðir dragast mest saman í ReykjanesbæHS Orka tryggir 27 milljarða fjármögnunFerðaþjónusta Reykjaness mun áfram sjá um akstur fatlaðra í Reykjanesbæ