Nýjast á Local Suðurnes

Ekki von á greiðslum frá Thorsil fyrr en starfsleyfi liggur fyrir

Þríhliða samningur milli Reykjaneshafnar, Thorsil ehf., og Arion banka hf. í tengslum við fjármögnun kísliverksmiðju Thorsil á iðnarsvæðinu í Helguvík var lagður fram á fundi stjórnar Reykjaneshafnar þann 19. desember síðastliðinn. Að sögn Halldórs Karls Hermannssonar hafnarstjóra snýr samningurinn að upplýsingagjöf og samskiptum á milli aðila vegna verkefnisins.

Fjármögnun verkefnisins var langt á veg komin þegar Umhverfisstofnun afturkallaði starfsleyfi félagsins þann 27. 0któber síðastliðinn, en fjórir lífeyrissjóðir munu leggja til um fjóra milljarða króna til verkefnisins, eigendur Thorsil, bandarískur fjárfestir, Equity Asset Group, og íslenskir fjárfestar hafa skuldbundið sig fyrir því hlutafé sem upp á vantar auk þess sem búið er að ganga frá lánasamningum við Arion banka, Íslandsbanka og einn erlendan banka.

Frest­ur­ Thorsil til greiðslu gatnargerðargjalda vegna verksmiðju fyrirtækisins sem áætlað er að reisa í Helguvík rann út þann 30. sept­em­ber síðastliðinn og hefur greiðslan ekki enn verið innt af hendi. Að sögn Halldórs Karls verður greiðslan ekki innt af hendi fyrr en starfsleyfi fyrirtækisins er í höfn, samkvæmt greiðslusamkomulagi sem er í gildi milli aðila.

“Starfsleyfi Thorsil ehf. var fellt úr gildi í október s.l. Ekki er von á greiðslum til Reykjaneshafnar frá Thorsil ehf. fyrr en starfsleyfi fyrir versmiðjuna liggur fyrir. Greiðslusamkomulag um fyrirkomulag greiðslna er í gildi milli aðila og ekkert innheimtuferli er í gangi.” Sagði Halldór Kars í svari við fyrirspurn Suðurnes.net.