sudurnes.net
Bláa lónið og HS Orka leggja 20 milljónir í uppbyggingu ferðamannastaða - Local Sudurnes
Bláa Lónið hf., HS Orka hf., og Reykjanes UNESCO Global Geopark ses. hafa gert með sér samkomulag vegna uppbyggingar ferðamannastaða á Reykjanesi. Bláa Lónið og HS Orka munu leggja til samtals 20 mkr á þremur árum til verkefnisins. Reykjanes UNESCO Global Geopark mun nýta fjármagnið til framkvæmda við veg og bílastæði við Gunnuhver, bílastæði við Reykjanesvita og byggingu nýs áningarstaðar við Brimketil. Verkefnin hafa auk þess fengið stuðning úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Fyrirtækin eru stofnaðilar að Reykjanes UNESCO Global Geopark og taka sem slík þátt í rekstri og uppbyggingu ferðamannastaða á Reykjanesi. Fyrirtækin vilja auka stuðning sinn við uppbyggingu ferðamannastaða á næstu þremur árum. Það er sameiginlegur hagur allra sem að verkefninu koma að stuðla að aukinni þekkingu á Reykjanesi og vekja áhuga á jarðfræðilegri sérstöðu þess í alþjóðlegu samhengi. HS Orka mun einnig bæta aðgengi að og veita upplýsingar um gönguleiðir í Eldvörpum, samhliða framkvæmdum á því svæði. Róbert Ragnarsson, formaður stjórnar Reykjanes UNESCO Global Geopark, og bæjarstjóri í Grindavík segir það vera einstakt að fyrirtæki komi með svo öflugum hætti að uppbyggingu innviða. „Reykjanesið er einstakt á heimsvísu og uppbyggingin er mikilvægt skref í að gera svæðið enn eftirsóknarverðara heim að sækja fyrir ferðamenn.” „Þetta er ekki í fyrsta sinn [...]