Bærinn tapar ef verksmiðju United Silicon verður lokað
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir í Morgunblaðinu í dag að Reykjanesbær muni missa umtalsverðar tekjur verði af lokun kísilveri United Silicon í Helguvík til frambúðar.
Eldur kviknaði í verksmiðjunni um páskana og Umhverfisstofnun hefur ákveðið að loka starfsemi fyrirtækisins um óákveðinn tíma.
„Bærinn mun missa tekjur af höfninni ef starfsemi verksmiðjunnar leggst niður og auðvitað útsvarsgreiðslur þeirra fjölda starfsmanna sem þarna starfa.” Segir Kjartan meðal annars.