Nýjast á Local Suðurnes

Auglýsa eftir aðilum til að reka “Pop-up” veitingastað í Leifsstöð

Isavia kynnir nú þá nýjung á Keflavíkurflugvelli að bjóða upp á tímabundið verslunar- og veitingarými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Fyrirkomulagið er þekkt á flugvöllum erlendis og gengur yfirleitt undir nafninu „Pop-Up“ rými. Nú fyrir sumarið 2017 er auglýst eftir aðilum til þess að reka veitingastað í slíku „Pop-up“ rými á annarri hæð í suðurhluta flugstöðvarinnar en fyrir vetrartímabilið verður sérverslunum einnig boðið að sækja um.

Um er að ræða verslunar- og veitingarými sem auglýst verður til útleigu í tvö tímabil á ári, sumar og vetur, fimm til sex mánuði í senn. Með þessari nýjung vill Isavia koma til móts við mismunandi þjónustuþarfir eftir árstíma og farþegafjölda. Um suðurhluta flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli fara flestallir þeir farþegar sem millilenda hér á landi á milli Evrópu og Norður-Ameríku og stoppa hér í stutta stund. Því er nú leitað að aðila sem getur afgreitt mat hratt og vel og höfðar til flugfarþega sem vilja fá sér hressingu á meðan á 20-70 mínútna stoppi sínu á Keflavíkurflugvelli stendur.

Svæðið sem um ræðir er um 35 fermetrar að stærð á stað sem fjöldi farþega gengur framhjá. Árið 2016 lentu 1,1 milljón farþega hér á landi einungis til að skipta um vél á leið milli heimsálfa og hefur þeim farið fjölgandi ár frá ári.

Nánari upplýsingar um verslunar- og veitingarýmið, valferlið og þau skilyrði sem umsækjendur þurfa að uppfylla má finna á vef Keflavíkurflugvallar, www.kefairport.is/pop-up. Frestur til að lýsa yfir áhuga um rekstur í rýminu í sumar er til 21. apríl næstkomandi.