Nýjast á Local Suðurnes

Átak til atvinnusköpunar – Umsóknarfrestur til 21. janúar

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu „Átak til atvinnusköpunar“ Veittir eru styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir og er umsóknarfrestur  til hádegis 21. janúar 2016.  Umsóknarsíðu má finna hér.

Markmið verkefnisins er að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu fjármögnun sjóða eða fagfjárfesta. Sérstök áhersla er lögð á hönnun og afþreyingu í ferðaþjónustu að þessu sinni. Nánari upplýsingar er að finna hér.