54% í HS Orku seld á 116 milljarða króna
Samkomulag hefur náðst um kaup Innergex Renewable Energy á Alterra Power Corp. sem er stærsti hluthafinn í HS Orku. Þetta kemur fram í á vef mbl.is.
Kaupin nema 1,1 milljarði Bandaríkjadala, eða tæpum 116 milljörðum íslenskra króna og fela í sér 25% reiðufé og 75% hlutafé í Innergex. Þau eru háð samþykki hluthafa Alterra. Alterra Power fer núna með 53,9%hlut í HS Orku.
Uppfært kl. 17:33: Skv. upplýsingum frá HS Orku var ekki var farið rétt með stærð á eignarhlut Alterra Power í fyrirtækinu, í upphaflegu fréttinni, og hefur því verið breytt í frétt og fyrirsögn.