Nýjast á Local Suðurnes

21% fjölgun farþega hjá Icelandair

221 þúsund farþegar flugu með Icelandair í milli­landa­flugi í mars og voru þeir 21% fleiri en á síðasta ári. Fram­boðsaukn­ing á milli ára nam 20%. Sæta­nýt­ing var 84% og jókst um 1,4 pró­sentu­stig á milli ára og hef­ur aldrei verið hærri í mars.

Seld­ir blokktím­ar í leiguflugi juk­ust þá um 8% á milli ára. Frakt­flutn­ing­ar juk­ust um 1% frá því á síðasta ári. Þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins.