Yfirmaður íþróttamála hjá SönderjyskE kannast ekki við kaupin á Ísak Óla - Local Sudurnes
Hans Jörgen Haysen, yfirmaður íþróttamála hjá danska knattspyrnufélaginu SönderjyskE kemur að fjöllum þegar hann er spurður út kaup félagsins á Ísaki Óla Ólafssyni, leikmanni Keflavíkur. Frá þessu er greint á Fótbolti.net. Í samtali við jv.dk segir hann að félagið sé ekki búið að kaupa leikmanninn. „Við höfum ekki skrifað undir neina samninga og við höfum ekki keypt neinn Íslending,” sagði Hans Jörgen við JydskeVestkysten. Knattspyrnudeild Keflavíkur greindi á sunnudag frá því að samningar um kaup danska félagsins á leikmanninum væru frágengin og sagðist Sigurður Garðarsson formaður knattspyrnudeildarinnar meðal annars vera “mjög ánægð með þau samskipti sem við áttum við Sonderjyske og teljum að samkomulagið sé sanngjarnt fyrir alla aðila.” Meira frá SuðurnesjumNóg af stigum eftir til að ná Pepsí-deildarsæti – Grindavík – Víkingur Ó í kvöldEarl Brown Jr. rekinn frá Keflavík – Fyrrum leikmaður Tindastóls kemur í hans staðÍsak Ernir dæmir í Las Vegas – NBA aldrei áður boðið íslenskum dómara þátttökuAron til Grindavíkur og Ísak Óli framlengir við KeflavíkGamalt og gott – Skrípaleikur í LjónagryfjunniLeikmenn í sóttkví og leikjum frestaðTitringur innan Stopp-hópsins – Gagnrýni á breyttar áherslurAð duga eða drepast fyrir Keflavík – Miðar á kvennaleik í kvöld gilda einnig á karlaleikinnKörfuboltadómarar framtíðarinnar lærðu réttu tökin í ReykjanesbæÁstrós og Ágúst Taekwondomenn ársins