sudurnes.net
Yfir hálf milljón manna fylgjast með Ragnheiði Söru á Instagram - Local Sudurnes
Crossfit-undrið úr Njarðvík, Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, hefur heldur betur slegið í gegn í íþróttinni á undanförnum árum, en hún hefur sem kunnugt er hafnað í þriðja sæti á Heimsleikunum í crossfit tvö ár í röð. Sara er vinsæl á samfélagsmiðlunum og hefur til dæmis tæplega 550 þúsund fylgjendur á Instagram og um 100 þúsund á Facebook. Ragnheiður Sara, sem býr í Njarðvík og æfir með Crossfit-Suðurnes stefnir þó hærra í íþróttinni, en hún stefnir á að búa og æfa erlendis í framtíðinni. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í viðtali sem þeir Kjartan Atli og Hjörvar Hafliðason tóku við hana í þættinum Brennslan á Bylgjunni. Viðtalið má heyra má hér fyrir neðan. Meira frá SuðurnesjumTil mikils að vinna á Heimsleikunum í crossfitNjarðvíkingar fara hamförum á samfélagsmiðlumRagnheiður Sara: “Stóð ekki undir eigin væntingum”Ragnheiður Sara fer rólega af stað á Heimsleikunum í CrossFitSara í fanta formi í myndatöku fyrir Nike – Sjáðu myndirnar!Yfir milljón manns fylgja Ragnheiði Söru á samfélagsmiðlunumHvernig svindlar Sara á mataræðinu? – Myndband!Ragnheiður Sara tryggði sér keppnisrétt á Heimsleikunum í crossfitRagnheiður Sara sigraði einvígið – Er efst í forkeppni fyrir HeimsleikanaRagnheiður Sara sigurstrangleg – Uppselt á Heimsleikana í crossfit