Nýjast á Local Suðurnes

Williams á förum frá Njarðvík

Mynd: Kkd. Njarðvíkur

Njarðvík hefur sagt upp samningi sínum við Eriku Williams og er hún á förum frá félaginu. Williams þótti ekki standa undir væntingum og því ákveðið að rifta samningi.

Hvort takist að ráða annan leikmann inn í liðið fyrir næsta deildarleik er óvíst en unnið er hörðum höndum að því að finna liðinu leikmann í stað Eriku, segir í tilkynningu frá Njarðvík.