sudurnes.net
Voga Þróttarar ósáttir við HSÍ og Reykjavíkur Þrótt: "Einhverjir vildu bregða fyrir okkur fæti" - Local Sudurnes
Þróttarar úr Vogum eru miður sín yfir þeirri ákvörðun Handknattleikssambands Íslands að heimila ekki færslu á leik liðsins gegn Þrótti Reykjavík um fjóra daga. Um er að ræða leik í annari umferð Coca-Cola bikarsins, en Þróttur V. vann stórsigur á Fjölni í fyrstu umferð keppninnar. Leikurinn var settur annað kvöld, en ljóst var að Þróttarar úr Vogum næðu ekki að manna lið á þeim degi, auk þess sem heimavöllur liðsins við Strandgötu í Hafnarfirði er upptekinn á þessum tíma. Þróttarar úr Vogum lögðu því til að leikurinn yrði settur á mánudaginn 18. desember, en því var hafnað, bæði af HSÍ og Þrótti Reykjavík. Voga Þróttarar segja þátttöku liðsins í bikarkeppninni undanfarin ár hafa verið góða auglýsingu fyrir handboltann á Íslandi, enda liðið skipað þekktum leikmönnum úr landsliðum Íslands í gegnum tíðina. Þá segja Voga Þróttarar að stefnt hafi verið á að slá aðsóknarmet á Strandgötunni, en að það líti út fyrir að einhverjir hafi viljað bregða fyrir þá fæti þetta árið og að það hafi tekist. Meira frá SuðurnesjumGrannaslagur í boði NettóLandsliðsþjálfari Austurríkis stjórnar Vogabúum í bikarkeppni HSÍSumarbúðir Skautafélags Reykjavíkur – Spennandi og metnaðarfull dagskráKeflavík semur við fimm ungar og efnilegarKeflavík tekur á móti KR á þriðjudag – ATH breytta dagsetninguKeflavíkursigur [...]