Nýjast á Local Suðurnes

Víðir Garði semur við Magnús Þóri og Unnar Má

Knattspyrnudeild Víðis í Garði hefur náð samkomulagi til eins árs við þá Magnús Þóri Matthíasson og Unnar Má Unnarsson og koma þeir báðir frá Keflavík.

Magnús Þórir Matthíasson sem er 27 ára fæddur og uppalin í Garðinum. Magnús hefur leikið 129 deildarleiki fyrir Keflavík og skorað í þeim 18 mörk. Hann hefur einnig leikið 13 bikarleiki og skorað fjögur mörk auk eins leiks í Evrópukeppni og 33 leiki í deildarbikarnum þar sem mörkin eru 12.

Unnar Már Unnarsson 23 ára gamall varnarmaður, fæddur og uppalin í Keflavík. Unnar Már á skráða 17 leiki með Keflavík í efstu deild og 4 leiki í bikar.

“Við erum gríðarlega ánægð að hafa náð þessum tveimur strákum til Víðis. Þeir eiga eftir að styrkja liðið mikð með reynslu sinni úr efstu deild” Segir í tilkynningu frá Víði.