Nýjast á Local Suðurnes

Velja íþróttamann og íþróttakonu ársins á gamlársdag

Íþróttabandalag Reykjanesbæjar stendur að venju fyrir vali á íþróttamanni ársins, valið verður kunngjört á gamlársdag kl.13:00 í íþróttahúsinu í Njarðvík. Að þessu sinni verður sú nýbreytni tekin upp að bæði verður tilkynnt um val á íþróttakonu og íþróttakarli Reykjanesbæjar.

Á sama tíma verða iðkendur sem urðu Íslandsmeistarar á árinu heiðraðir. ÍRB býður alla hjartanlega velkomna á þessa hátíðlegu stund á síðasta degi ársins, segir í tilkynningu.