sudurnes.net
Úrslitakeppni yngri flokka á Íslandsmótinu í körfu fer fram í Keflavík um helgina - Local Sudurnes
Um næstu helgi verður mikil körfuboltaveisla í TM höllinni í Keflavík þegar síðari úrslitahelgi yngri flokka á Íslandsmótinu fer fram í umsjón Unglingaráðs Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur. Þessa helgi verða síðustu Íslandsmeistarar yfirstandandi tímabils krýndir en leikið er til undanúrslita og úrslita í unglingaflokki karla og kvenna og 10. flokki drengja og stúlkna. Undanúrslit verða leikin á föstudagskvöld og laugardag en úrslitaleikrinir fara fram á mánudag (2. í Hvítasunnu). Allir leikirnir verða í beinni tölfræðilýsingu á kki.is og úrslitaleikirnir á mánudeginum verða einnig sýndir í beinni netútsendingu á YouTube rás KKÍ. Dagskráín verður eftirfarandi: Föstudagur 13. maí Kl. 18.00 unglingaflokkur kvenna undanúrslit: Keflavík-Breiðablik Kl. 20.00 unglingaflokkur kvenna undanúrslit: Haukar-Snæfell Laugardagur 14. maí Kl. 10.00 10. flokkur stúlkna: KR-Haukar Kl. 11.45 10. flokkur stúlkna: Grindavík-Keflavík Kl. 13.30 10. flokkur drengja undanúrslit: KR-Þór Ak. Kl. 15.15 10. flokkur drengja undanúrslit: Haukar-Fjölnir Kl. 17.00 unglingaflokkur karla: Grindavík-KR Kl. 19.00 unglingaflokkur karla: Tindastóll-FSu Mánudagur 16. maí Kl. 10.00 10. flokkur drengja úrslitaleikur Kl. 12.00 10. flokkur stúlkna úrslitaleikur Kl. 14.00 unglingaflokkur kvenna úrslitaleikur Kl. 16.15 unglingaflokkur karla úrslitaleikur Meira frá SuðurnesjumAllir leikirnir í bikarúrslitunum í beinni útsendinguFjögur staðfest smit á SuðurnesjumKörfuboltaveisla í Keflavík í vikunni – El-Classico á föstudagKeflavíkursigur í grannaslagGrannaslagur í Dominos-deildinni á fimmtudagBreyttar [...]