Nýjast á Local Suðurnes

Uppsögn Margrétar á sér langan aðdraganda – Yfirlýsing stjórnar Kkd. Keflavíkur

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna uppsagnar Margrétar Sturlaugsdóttur fyrrum þjálfara meistaraflokks kvenna hjá félaginu. Í yfirlýsingunni sem er að finna í heild sinni hér fyrir neðan kemur meðal annars fram að uppsögnin hafi átt sér langan aðdraganda og sé ekki vegna eins tiltekins máls.

Yfirlýsing frá stjórn Kkd. Keflavíkur:

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur (KKDK) tók á dögunum þá ákvörðun að þjálfari meistaraflokks kvenna myndi láta af störfum. Í kjölfarið ákvað stjórnin að tjá sig ekki frekar um málið þar sem stjórn KKDK er bundin trúnaði gagnvart þjálfurum og leikmönnum og ætlar að virða hann. Mál sem þessi eru yfirleitt mjög viðkvæm enda snerta þau ekki aðeins stjórn, þjálfara og/eða leikmenn umrædd liðs, heldur einnig fjölskyldur, vini og stuðningsmenn. Umrætt mál er meðal annars viðkvæmt í ljósi þess að leikmannahópur meistaraflokks kvenna er nánast eingöngu skipaður börnum og/eða mjög ungum stúlkum og var það því mat KKDK að best væri að hlífa þeim við frekari umfjöllun.

Sú staða hefur breyst í kjölfar þess að fyrrum þjálfari liðsins ákvað að koma fram í fjölmiðlum með sína hlið málsins, hlið sem stjórn KKDK er einfaldlega ekki tilbúin að kvitta fyrir. Er það því svo að stjórn KKDK sér sig nauðbeygða að koma ungum leikmönnum liðsins til varnar. Ekki er lengur hægt að sitja hjá á meðan hvað eftir annað er látið í veðri vaka, bæði í viðtölum við fyrrum þjálfara liðsins og á samfélagsmiðlum, að það hafi verið tveir ungir leikmenn liðsins sem hafi orðið þess valdandi að stjórn KKDK ákvað að segja upp Margréti Sturlaugsdóttur.

Stjórn KKDK vill að það komi skýrt fram að fyrrum þjálfari liðsins var ekki látin fara frá félaginu vegna eins tiltekins atviks, vegna þess að einn eða tveir leikmenn voru ósáttir við hennar störf eða vegna þess að leikmenn hótuðu að hætta. Málið er mun flóknara og á sér lengri aðdraganda. Það að halda því fram að stjórn KKDK hafi látið stjórnast einvörðungu af afstöðu tveggja leikmanna eða ákveðið að taka afstöðu með tveimur leikmönnum á kostnað heildarinnar á ekki við rök að styðjast. Þegar einn af bestu leikmönnum liðsins yfirgefur liðið að hausti, þegar óánægju fer að gæta meðal leikmanna, þegar greina má samskiptaörðugleika milli leikmanna og þjálfara og þegar svo leikmenn, sem æft hafa körfubolta með félaginu í mörg ár og eiga landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands, ákveða að hætta í körfubolta er stjórn félagsins auðvitað skylt að staldra við og skoða málið nánar sem og hún gerði.

Sú erfiða ákvörðun sem tekin var í þessu máli var tekin með hagsmuni félagsins að leiðarljósi, þ.e. heildarhagsmunir félagsins voru á endanum það sem réði að mati stjórnar. Enginn kostur var góður í þeirri stöðu sem upp var komin og því sá stjórn KKDK í raun ekki aðra lausn á málinu en að láta þjálfarann fara.

Stjórn KKDK lítur svo á að með þessari yfirlýsingu sé málinu lokið af hennar hálfu. Nú fara í hönd mikilvægir leikir hjá liðinu með nýjum þjálfara í brúnni. Það er ósk stjórnar KKDK að stuðningsmenn liðsins geri það sem Keflvíkingar gera best og styðji stelpurnar til áframhaldandi góðra verka í leiknum sem við öll elskum!

Stjórn KKDK