Nýjast á Local Suðurnes

Undankeppni EM U17 í knattspyrnu fer fram í Grindavík

Knattþrautir, hoppukastali og pylsupartý í boði fyrir áhorfendur

Undankeppni EM kvenna U17 fer fram í Grindavík og Kópavogi - Mynd: Grindavíkurbær

Undankeppni EM U17 kvenna hefst á mánudag og eru leikstaðirnir þennan fyrsta leikdag Grindavíkurvöllur og Kópavogsvöllur. Ísland leikur þá sinn fyrsta leik í Grindavík, gegn Þýskalandi, og hefst hann kl. 19:00. Kl. 13:00 á mánudaginn mætast England og Spánn, einnig á Grindavíkurvelli.

Fyrir hvern einasta leik í mótinu verður boðið upp á knattþrautir, hoppukastali verður á staðnum, veggspjöld af landsliðum karla og kvenna og hver veit nema okkar fremsta knattspyrnufólk verði á staðnum sömuleiðis til að árita myndir, segir á heimasíðu Grindavíkur. Hálftíma fyrir leik verður svo boðið upp á grillaðar SS pylsur í brauði frá Hérastubbi bakara og ávaxtasafa í boði Vífilfells.

Þá gefst áhorfendum kostur á að vinna miða á landsleiki hjá A-landsliðum karla og kvenna. Það eina sem þarf að gera er að mæta og skrifa nafn sitt á miða, setja miðann í kassa sem verður á staðnum og fylgjast með leiknum. Tilkynnt verður um vinningshafa á meðan á leik stendur.

Leikdagarnir í riðlakeppninni eru 22. júní, 25. júní og 28. júní.