Nýjast á Local Suðurnes

Tvö mörk í fimm leikjum hjá Arnóri – Ingvar kom ekki við sögu

Njarðvíkingurinn Arnór Ingvi Traustason skoraði eina mark Íslendinga í vináttu­lands­leik gegn Dönum í knatt­spyrnu sem fram fór í Hern­ing á Jótlandi í kvöld. Markið sem Arnór skoraði undir lok leiksins  með föstu skoti með jörðinni er  annað mark Njarðvíkingsins í fimm landsleikjum. Myndband af marki Arnórs má sjá hér fyrir neðan.

Arnór kom inná sem varamaður í síðari hálfleik og var einn af betri leikmönnum Íslands í leiknum. Annar Njarðvíkingur, markvörðurinn Ingvar Jónsson var á bekknum í kvöld og kom ekki við sögu í leiknum.