Nýjast á Local Suðurnes

Tveir erlendir leikmenn til Njarðvíkur

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur samið við tvo erlenda leikmenn um að leika með liðinu út yfirstandandi tímabil, þá Tevin Falzon og Aurimas Majauskas. Þeir Majauskas og Falzon munu fylla skörð Kyle Williams og Wayne Martin sem hafa róið á önnur mið.

Falzon er framherji/miðherji sem útskrifaðist frá Sacred Heard háskólanum í Bandaríkjunum. Hann lék síðast í bresku BBL deildinni með 8,6 stig og 6,4 fráköst að meðaltali í leik. Falzon er landsliðsmaður hjá Möltu og hefur meðal annars tekið þátt í smáþjóðaleikunum með Maltverjum og mætt þar Íslandi.

Majauskas er 202 cm hár og lék tímabilið 2018-2019 í NKL deildinni í Litháen með Palangos Kursiai. Majauskas er fæddur 1993 og var í háskóla í Bandaríkjunum við Sam Houston State.