sudurnes.net
Þróttur í góðri stöðu eftir 4-0 sigur gegn Hvíta Riddaranum - Local Sudurnes
Þróttarar mættu liði Hvíta Riddarans í fyrri leiknum í 8. liða í úrslitakeppni 4. deildar. Þróttarar hófu leikinn af miklum krafti komust strax yfir á annari mínútu. Þróttarar bættu við öðru marki fyrir leikhlé úr vítaspyrnu. Þriðja mark Þróttar kom á 70. mínútu og staðan vænleg fyrir liðið úr Vogum sem voru þó ekki hættir og bættu fjórða markinu við á 80. mínútu. Liðið fer því með fjögur mörk í forystu í síðari leikinn sem fram fer á Vogabæjarvelli á þriðjudaginn og hefst kl. 17:30. Stuðningsmenn Þróttara eru hvattir til að mæta tímanlega og tryggja sér góð sæti. Meira frá SuðurnesjumNjarðvíkingar í góðri stöðu eftir sigur í GarðabæFyrsta tap Njarðvíkinga – Víðir í fjórða sæti eftir sigur í markaleikVíðismenn sækja leikmenn frá Serbíu og GrindavíkTvö mörk á lokamínútunum tryggðu Keflavík stigin þrjúFáir mæta á heimaleiki Keflavíkur – Tekjutapið hleypur á milljónum krónaÞróttarar sprungu á limminu í síðari hálfleik og eru úr leik í bikarnumÖruggur sigur kom Grindavík á topp Inkasso-deildarinnarJafnt hjá Keflavík í lokaleiknum – Grindavík skoraði mest allra liða í deildarkeppniVíðir Garði með flottan sigur á Vængjum JúpitersMargrét skoraði 8 mörk fyrir Grindavík – Einu marki frá meti Olgu Færsteh